Undirbúningur fyrir umsókn innsiglis
Áður en fyllt er út umsókn um innsigli
Í umsóknarferlinu um innsigli þarf að tilgreina lögbæran fulltrúa en sá aðili verður að vera með prókúru á fyrirtækið, félagið, stofnunina eða umboð frá prókúruhafa.
Ef tilgreina á lögbæran fulltrúa sem ekki er með prókúru þarf hann að fá umboð frá prókúruhafa. Hér er hægt að fylla út umsókn um umboð fyrir lögbæran fulltrúa.
Tæknilegan tengilið þarf að tilgreina í umsókninni en hann er sá aðili sem fær tilkynningar frá okkur varðandi skilríkin. Þessi aðili fær t.d. tilkynningu frá okkur 30 dögum áður en gildistími innsiglisins rennur út.